Hilmir Arnarson

Ég er sæll og glaður maður eins og ég sagði áðan.  Ég hef gaman af því að skrifa um hitt og þetta þegar ég nenni.  Er dálítið dramatískur og geri hlutina persónulega.
Ég bý fyrir austan, á Fáskrúðsfirði ásamt kettinum Róberti og honum Fúsa samleigjanda.  Við Fúsi vinnum í Fjarðaráli á Reyðarfirði á meðan Róbert sér um húsverkin heimafyrir.
Ég fýla fótbolta og skelli mér á völlinn af og til og er alltaf á leiðinni í hobbýfótbolta sem spilaður er í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði og svo er ég líka alltaf á leiðinni í ræktina.
Ég er óvirkur meðlimur í Veiðiklúbbi Imatra en Imatra er bær í Finnlandi við landamæri Rússlands.  Hvernig ég komst í klúbbinn er önnur saga.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Hilmir Arnarson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband